Nokkrir punktar frá Marokkó.....

Við Hassan

Jæja  þá  er maður kominn heim aftur eftir  nokkura  daga ferðalag til  Agadir  enn og  aftur.  Frábær  borg Agadir og  ég bara hvet  alla sem hafa áhuga á  einhverju öðru en Kanarí  og eða  þessum hefðbundnu  Íslensku  áfangastöðum  að  kíkja  á  Agadir.. Ég  var  svo  heppinn núna  að  ég þurfti að fara degi  fyrr  vegna  samgangna  og  náði  þess vegna einum  hálffrídegi  á  sunnudaginn... Það var að vísu hringt í mig um morguninn og ég beðinn að hitta  mann  sem ég og gerði.  Maðurinn er  skandinavi   sem er búinn að vera búsettur í Marokko í  15 ár og á  hér  bú og  börn með  konu sinni sem er héðan.   Ég  hitti  hann og son  hans  Hassan  9 ára  sem er hálfur skandinavi.   Hassan  talar  svolítið í  skandinavísku,  arabísku  auðvitað,  frönsku og  ensku..

Hassan  er  skemmtilegur strákur og  góður í  fótbolta  að eigin sögn,  hann er allt  öðruvísi en önnur börn sem  ég hef séð hér, með hár niður á herðar  og  pabbi hans sagði mér að það væri víkingurinn í honum sem brytist svona út..   Við  fórum á  veitingahús  saman þar sem  ég  borðaði einhvern hefðbundinn  Marokóskan  rétt sem  gerði  svo  uppreisn í   maganum á mér  um kvöldið og daginn  eftir en maturinn  var mjög góður og  ég er alveg til að prófa meira af svona mat í  framtíðinni.. ´

Ég  fékk líka  tækifæri til að fara í smá göngutúr um aðal ferðamannasvæðið  við ströndina og það er í raun ótrúlegt hvað búið er að byggja upp  flotta ferðamannaaðstöðu   þarna á  örfáum árum,  skemmtlegir veitingastaðir, fínar verslanir og  allskonar afþreying  á  ströndinni. 

 Á morgun  þann 13. september  byrjar  svo RAMADAN   og  þá  breytist allt hér,  fólk er  búið að vara okkur  aðeins við og  ef  okkur finnst hlutirnir ganga  hægt  venjulega, þá  fyrst   byrjar  ballið á  ramadan,  það hægir á öllum hlutum yfir daginn  og  allt  fer  á fulla ferð á nóttunni.  Það verður bara lífsreynsla að upplifa  þetta  tímabil  með  fólkinu hér og  ég tek bara því sem að höndum ber..í  því... 

Aðeins um veðrið,  það er  bara  eins hér dag  eftir dag eftir dag..   Er það ekki þannig á Landinu góða líka,  nema kannski ekki alveg  eins..

Hafið það eins og þið viljið.. 

Magnús G Police  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig væri að íslendingar færu til Marokkó á tímabilinu sem Ramadam er, og fengju sér afstressunarkúr í haustgjöf..eða afmælisgjöf. Við erum frekar stressuð þjóð, því verður seint neitað. Ferðaskrifstofurnar ættu að selja svona ferðir, ekki bara fara í sólina og slaka á...heldur að sýna fólki öðruvísi aðstæður þar sem virkilega reynir á þolinmæðina. Við verðum glaðari með það sem við eigum eftir svona reynslu, hef reynslu frá Thailandi.

Gangi þér vel í dag að takast á við þolinmæðina. 

Kristín (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband